9.2.2007 | 18:26
Dagur að kveldi kominn
Ýmsu áorkað í dag. Fór meðal annars í segulómskoðun og röntgenmyndatöku, niðurstaðan ætti að liggja fyrir eftir helgi. Tók létta æfingu í ræktinni, þrekhjóli í 40 mínútur var fylgt eftir með léttum lyftingum og magaæfingum.
Er á leið í meistaramót DM í keilukasti, einhver sú alleiðinlegasta íþrótt sem ég hef prufað. Kæmi mér samt ekki á óvart að sigur verði raunin. Annars er ég að spá í að labba út í keiluskónum, hef alltaf verið veikur fyrir slíkum skóbúnaði, bara töff.
NG
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.