26.9.2007 | 22:00
Byrjaður að pjakka
Þá er maður aðeins farinn að hreyfa sig aftur eftir ágætt golfsumar. 5 af kílóunum 15 sem fuku síðasta vetur hafa tekið sér bólfestu um mig miðjan á nýjan leik.
Annars er þetta á réttri leið og síðustu 3 vikur hef ég fundið fyrir ágætum stíganda.
Vika 37 - 7,5 km + 7,5 km + 7,5 km + 5,5 km - samtals 28 km
Vika 38 - 9 km + 10 km + 10 km - samtals 29 km
Vika 39 - hingað til - 5,5 km + 15 km + 13 km
Hraði í lágmarki en það kemur. Skrokkur í ágætu lagi.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.6.2007 | 15:20
Lítill tími
Hef aðeins verið að dóla mér við að hlaupa undanfarna daga. Túrarnir hafa verið í styttri kantinum 7,5 - 10 km. Annars er lítill tími aflögu þessa dagana og synd að sólarhringurinn sé ekki lengri. Ætla að reyna að halda 3 hlaupum í viku á dagskránni, annars hefur golfið forgang.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2007 | 09:20
Undur og stórmerki
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2007 | 00:00
14.05.07
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2007 | 12:52
Neshlaupið
Eftir að hafa horft út um gluggann í morgun, horft út á úfinn flóann og hóstað upp mesta skítnum, ákvað ég að fórna mér út í rokið. Veðrið var nú ekki meira spennandi en það að búið er að fresta golfmótinu sem átti að vera á Nesinu í dag.
Það var erfitt að hlaupa en tíminn kom skemmtilega á óvart, ef allt er tekið með í reikninginn og ég er nokkuð sáttur. Tíminn á þessa 7,5 km var 34.22 mín. Samtals voru farnir um 13 km með upphitun og niðurskokki.
Í startinu kom ég auga á Evu Margréti stórhlaupara og bloggara. Ég les síðuna hennar og vissi að hún hafði verið að hlaupa á svipuðum tímum og ég undanfarið. Ég ákvað því að hengja mig á hana í byrjun. Það gekk ágætlega og ég náði að hanga í henni á þrjóskunni framan af. Hún hristi mig svo af sér undir það síðasta og kláraði um 30 sek á undan. Hún er reyndar nýbúin að ala barn, en ekki ég. Ótrúlega vel gert hjá henni.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.5.2007 | 23:44
Fúkalyf
Dólaði mér 10 í dag. Það er ekki gott að hlaupa með lungnabólgu. Er komin á einhver fúkalyf og vonast til að verða betri á laugardaginn í Neshlaupinu.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2007 | 00:13
Þokkalegur
Fín æfing í Laugardal í dag. Það er alltaf að fjölga í hópnum sem nú er orðinn nokkuð myndarlegur. Samtals gerði þetta 11 - 12 km með öllu. 3 x 800 m á 3.02 mín - 3.01 mín - 3.02 mín og 2 x 400 á 85 sek og 80 sek. Kom mér nokkuð á óvart hvað ég var sprækur miðað við það sem á undan var gengið. Hef verið fullur af skít síðan 12. apríl og nú er svo komið að ég þarf að hitta lækninn og sækja um fúkalyf. Virðist ekki ætla að hrista þetta af mér hjálparlaust.
Kvöldinu var svo eitt á golfvellinum í einmuna veðurbliðu.
Stór dagur framundan á laugardag. Hann hefst í kjörklefanum þar sem Frjálslyndir munu fá mitt atkvæði, aðrir eru einfaldlega ekki kostur í mínum augum. Því næst ætla ég að silast 7,5 km í Neslhlaupinu og að því loknu tekur við Byko mótið á Nesvellinum. Kassinn býður svo uppá úrvalsdagskrá fram eftir nóttu sem hugmyndin er að fylgjast með.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2007 | 23:04
Helgi Freyr á afmæli í dag
Fartelikur í dag. Var frekar timabundinn sem gerði það að verkum að æfingin varð í styttri kantinum. Samtals 6,5 km með öllu. 5 sinnum 500 m þéttingar á 3,40 mín hraða. Skrúbbaði svo rass og rana og hélt í afmælisveislu hjá Helga Frey uppáhalds frænda mínum. Þar var vel veitt að vanda.
Á morgun er svo hreinsunarmót á Nesinu. Þar verður tekið til hendinni og leikið golf að því loknu. Næsta hlaup verður því ekki fyrr en á sunnudag.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2007 | 22:10
Enn í rétta átt
Leiðin heldur áfram upp á við. Fór 10 km í kvöld. Rólega framan af en endaði á góðri siglingu, síðasti km var á 4 mín hraða.
Nú er staðan orðin þannig að hlaupin og golfið eru farin að togast verulega á. Hef staðið frammi fyrir því að taka ákvörðun um þetta í nokkurn tíma. Maraþonið er óumflúið, það er búið að leggja það mikið í þetta nú þegar. Golfið verður þó líka stundað af kappi sem þýðir að ekki verður hægt að haga maraþon undirbúningi eins og best verður á kosið. Það gengur ekki að hlaupa 100 km í viku og ganga aðra 100 km. Millivegurinn verður því farinn þó það kosti nokkrar mínútur í tíma þegar á hólminn verður komið.
Varðandi framtíðina er hugmyndin sú að stefna á eitt af þessum vor-maraþonum í Evrópu. Þá er hægt að hlaupa eins og hestur allan veturinn og mæta til leiks í toppstandi. Sumrin yrðu þá rólegi tíminn í hlaupunum og golfið stundað af kappi.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2007 | 23:57
Miðnæturrölt
Hellan var fín í gær þrátt fyrir lélega spilamennsku og veðurfar. Maður var orðinn ansi kaldur og blautur undir það síðasta. Liverpool sá svo um að taka úr manni mesta hrollinn að hring loknum.
Var í þessum skrifuðu orðum að koma inn úr 10 km miðnætur hlaupi. Smám saman er maður að færast nær fyrra formi. Finn það best á púlsi vs. hraða. Nú er maður vonandi kominn á beinu brautina aftur. Fann vel eftir hringinn í gær muninn á líkamlegu ástandi frá síðasta ári. Maður var í fyrra alltaf frekar lúinn eftir 18 holur, nú er það meira eins og upphitun.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2007 | 21:45
Þarna þekki ég þig
Eitthvað er maður nú að skána. Fór 8 km áðan á góðu róli, 4,25 mín hraða. Á leiðinni tók ég fram úr roskinni konu á reiðhjóli sem barðist við sjávargoluna við Suðurnes. Er það ekki ákveðinn standard að overlappa reiðhjólafólk?
Í kvöld var svo golfæfing í Básum, sú síðasta þar þetta árið því nú er komið sumar. Á morgun er svo fyrsta golfmótið, 1. maí mótið á Hellu sem endanlega boðar komu sumars. Við förum 12 stykki saman úr Nesklúbbnum á forláta langferðabifreið og hefur mér hlotnast sá heiður að vera forsöngvari þetta árið.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2007 | 16:54
Enn slappur
Fórum á Hellu í gær í golf. Ótrúlega hlýtt og ágætt að spila þrátt fyrir hávaðarok. Maður virðist koma þokkalega undan vetri, lék á þremur höggum yfir.
Fór svo í 8 km hlaup í dag. Reyndi að fara rólega en finn enn fyrir slappleika. Var þó örlítið sprækari en á föstudag. Ef ég fer ekki að hrista þetta af mér, þá fer ég til læknis í lok vikunnar.
Þessi vika gerir þá heila 18 km og sú síðasta 30 km, maður hefur þó gildar ástæður fyrir því.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2007 | 20:36
Heillum horfinn, hunskaðist ég út
Það hefur ýmislegt gengið á síðastliðna viku. Helgin síðasta var eitt allsherjar partý þar sem Íslandsmeistaratitlinum var fagnað í eitt skipti fyrir öll. Þegar fagnaðarlátum linnti tók við endajaxlataka og upp frá því lét kvefið sem ég hafði haldið að væri á undanhaldi aftur á sér kræla. Ástandið var svo slæmt að fyrstu 2 tímarnir á morgnana fóru nánast eingöngu í að ryksuga vitin svo maður gæti almennilega dregið andann.
Ég hunskaðist svo út að hlaupa nú áðan eftir vinnu þótt horið sé enn til staðar. Það var ekki gott, algjörlega kraftlaus og púlsinn rauk upp úr öllu. Lét mig hafa það að staulast 10 km á 51 mínútu. Var alveg búinn að þessu rólega hlaupi loknu. Hafði hugsað mér að taka vel á því um helgina en held að ég láti það vera á morgun allavega. Maður fær sér bara góðan göngutúr á golfvellinum í staðinn, það ætti ekki að saka.
Var að horfa á Kastljós sem mér finnst ágætur þáttur. Verð samt að segja að Helgi Seljan er farinn að fara í mínar fínustu taugar. Skil ekki hvað manninum gengur til, minnist þess einnig ekki fyrir allslöngu síðan að hann sýndi Arnþóri Helgasyni og Arndísi Björnsdóttur argasta dónaskap í viðtali sem hann hafði boðað til. Spurði þau meðal annars hvað þau væru eiginlega að gera þarna, í viðtali sem hann sjálfur boðaði til notabene. Það er svo eitt að krefja fólk svara við óþægilegum spurningum en framsetningin og dónaskapurinn sem þessi maður sýnir á ekki heima á ríkisfjölmiðli.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2007 | 14:20
Hádegishlaup endurvakin
Við Sigurður fórum Álftaneshringinn í hádeginu, samtals 10,3 km. Báðir förum við á herrakvöldið þannig að tilvalið var að ljúka þessu af. Þetta er með eindæmum þægilegt og brýtur upp daginn sem líður mun hraðar fyrir vikið. Stefnt er að því að gera þetta tvisvar í viku í framhaldinu eins og tíminn leyfir. Atvinnuveitendur hljóta að vera þessu fylgjandi þar sem allt viðmót og þjónustustig starfsfólks eykst til mikilla muna í endorfínvímunni.
Fór á brúðarkjólaleigu í morgun og leigði mér smóking fyrir kvöldið. Það verður þá í fyrsta skipti frá fermingu sem maður klæðist slíkum búnaði.
Ekkert verður hlaupið á morgun en stefni á 22km á sunnudag.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2007 | 22:33
Kvefið á undanhaldi
Þá er tölvan loksins komin í lag. Ákvað að fara ekki í ÍR hlaupið í dag vegna kvefs undanfarið. Það er þó á undanhaldi og ég fór 10 km í gær og 8 km rólega í dag. Margir frábærir tímar sem náðust í dag og sigurtíminn hjá Kára Steini er lygilegur.
Annars hefur flest snúist um körfubolta síðustu daga og það heldur áfram á morgun en þá er herrakvöld KR. Það ætti að verða gaman. Mann skortir orð til að lýsa stemmingunni í kringum KR liðið í þessari frábæru úrslitakeppni. Flestir flögguðu íslenska fánanum í dag en ekki ég. Ég flaggaði KR fánanum enda er KR stærra en Ísland.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2007 | 11:36
Horkók
Hvíldin hefur farið fyrir lítið þar sem ég er haldinn almennum slappleika. Er með hor og hálsbólgu en það útskýrir allavega þessi lélegu hlaup í síðustu viku. Röddin algjörlega farin eftir kóræfinguna í Njarðvík á laugardag. Í ofanálag var árshátíð á mínum vinnustað á laugardagskvöld þar sem frjálslega var farið með áfengi. Slíkt hjálpar ekki til í maraþonundirbúningi. Annars hlítur maður að fara að hrista þetta hor af sér, annars verð ég að sleppa ÍR hlaupinu á fimmtudag. Ekkert gaman að fara sem hálfur maður.
Í kvöld verður svo KR Íslandsmeistari í körfunni. Það verður rosaleg stemming í höllinni.
Horfði á 60 Minutes á stöð 2 í gærkvöldi. Alltaf ágætir þættir. Gísli ritari sá um þýðingu og vakti athygli mína snilldar þýðing, "diet soda" = horkók.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2007 | 12:15
Áfram KR
Fór 16 km í gær. Setti í mig gel og var aðeins sprækari en undanfarið. Hljóp 8 km upp í Fossvog og sömu leið til baka. Meðal pace 4.45 mín/km.
5.09 - 4.53 - 5.00 - 4.47 - 4.42 - 5.04 - 4.50 - 4.37 - 4.33 - 4.40 - 4.55 - 4.42 - 4.37 - 4.27 - 4.37 - 4.27.
Held að ég fari að ráðum Birnu og taki mér hvíld fram á þriðjudag og fari svo í Víðavangshlaup ÍR á fimmtudag. Aðeins að hlaða batteríin það getur ekki sakað.
Fór á KR - Njarðvík í körfunni í gær, hvílik skemmtun. Þetta var eins og að vera staddur á handboltaleik í Júgóslavíu. Sungið og trallað allan tímann. Svo er bara að fjölmenna í kindakofann í Njarðvík á laugardag og styðja sína menn.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.4.2007 | 10:38
Slappur
Eitthvað er maður þungur og slappur þessa dagana. Fór 12 km í gær rólega (5.20 pace). Óvenju erfitt en hresstist þó eftir því sem á leið. Beinhimnubólgan er að plaga mig ásamt almennum slappleika. Spurning hvort maður þurfi að taka því rólega í nokkra daga. Annars eru 16 km á prógrami í kvöld, ætla að sjá hvernig ég verð þegar vinnudegi líkur.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.4.2007 | 11:58
Slæmur dagur
Tölvudraslið er hrunið og er í viðgerð. Skrifa þetta því á gamlan traktor sem þó virðist virka ágætlega.
Komst ekki á æfinguna hjá Sigurði í gær vegna anna í vinnu en fór út um leið og ég losnaði. Samtals 11 - 12 km með 5x1000m þéttingum. Var illa upplagður og skilaði þessu ekki nægilega vel. Tempó var á bilinu 4.09 - 4.20 sem er ekki ásættanlegt. Maður hlítur samt að geta átt slæma daga í þessu eins og öðru. Ég sting þessari æfingu því í ruslafötuna og ekki orð um hana meir.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.4.2007 | 15:47
Súkkulaðið hans afa er gott
Dagurinn byrjaði á morgunkaffi hjá ömmu og afa. Gríðarlegt magn kræsinga á boðstólunum eins og þeim er von og vísa. Meðal annars hið rómaða súkkulaði sem afi lagar eftir sinni leynilegu uppskrift.
Það var því gott að fara út og létta aðeins á sér eftir hádegið. 10 km rólegir á 5.23 mín hraða. Það var svolítið sérstakt að hlaupa í kringum golfvöllinn og sjá strákana vera að spila. Einhvern tíman hefði maður tekið þátt í því.
Ferðinni er svo heitið í enn eina veisluna, hjá mömmu að þessu sinni. Byrjar að sjálfsögðu klukkan 17.00 svo enginn missi nú af Masternum.
NG
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)




